Nýlega boðuðu Samtök iðnaðarins til kynningar á opnun á vefsetri, á þeirra heimasíðu, um ,,CE merkingu byggingarvara,,. Það má fagna þessu átaki SI. Vefurinn er ekki fullunninn og komu fram ábendingar um orðtök og þætti sem vantaði inn í hann. Vefurinn er unninn út frá vef frá Danmörku, þýddur og eitthvað bættur, en til viðbótar vantar að CE merking vöru er ekki nóg, það þarf einnig að vera með tæknisamþykki fyrir vöruna.
Þegar farið er inn á vefinn www.si.is og undir upplýsingar og útgáfa (http://www.si.is/upplysingar-og-utgafa/). Þá kemur upp upptalning hvað þar er undir og neðarlega er CE Merking byggingavara og þar er mögulegt að fá nánari upplýsingar. Í umræðum um CE merkingu byggingarvara kom m.a. fram að á milli Neytendastofu og Tollgæslunnar er stjórnsýsluleg skipun um samvinnu. Tollgæslan ber því að athuga gögn með vöru sem á að fara í endursölu hér á markaði. Þetta á þá einnig við gáma með húshlutum í einingarhús, að pappírar uppfylli það sem Neytendastofa og Tollgæslan ber að hafa samvinnu með að skoða, s.s CE merkingar. Nýlegt dæmi eru um að einingahús frá Dalkó, sem eru kanadísk. Burðarefni í þaksperrum og veggjagrindum er 38x89 mm og með vanköntum. Stimpillinn á sperrum, er tilvísum á Canadian Lumber Standards Accreditation Bord, CLSAB Roles. Engin tilvísun í DS413 eða annað sem byggingarfulltrúar eiga að þekkja. Nú hefur eitt af húsunum verið í tvo mánuði hjá Rb til vottunar, og þar verið stöðugt að kalla eftir gögnum til frekari skoðunar. Mér er spurn góðir byggingarfulltrúar, þar sem þetta er ekki fyrsta húsið frá Dalkó eða Kanada, hvernig hafið þið fengið þessi hús afgreidd til samþykktar?
Sigurður Jónsson formaður Fb.