Vorfundur Félags byggingarfulltrúa og Samtaka tæknimanna sveitarfélaga verður haldinn dagana 26. og 27. apríl nk. í Vestmannaeyjum.
Félagar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í áhugaverðum fundi.
Hér má sjá dagskrá fundarins
Fundur haldinn í Höllinni Vestmannaeyjum Fimmtudagur 26. apríl
Brottför frá Reykjavíkurflugvelli / Þorlákshöfn
Hægt er að velja ferðir til Eyja annað hvort með flugi að ferju. Félagar eru vinsamlegast beðnir um að sjá um þann þáttinn sjálfir, svo og gistingu. Fundarmenn verða sóttir á flugvöllinn / ferjulægið miðað við síðustu ferð á miðvikudag og fyrstu flugferð á fimmtudag.
Miðvikudagur, Síðasta flug 16.45, mæting 30 mín fyrir brottför Síðasta ferja 19.30, mæting 30 mín fyrir brottför. Ferðalagið tekur um þrjá tíma.
Fimmtudagur
Fyrsta flug 9.00 og koma til eyja 9.25
10:00 Skráning kaffi
10:30 Fundarsetning
10:40 Verkferlar og greining erinda hjá Framkvæmdasvið ReykjavíkurborgarFyrirlesari NNKynnt verður gæðahugtakið og gæðahringur við úrlausn mála hja Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar í samstarfi við tvö önnur svið borgarinnar. Á undaförnum árum hefur stjórnsýsla sveitarfélaga orðið sífellt flóknari og íbúar meðvitaðri um rétt sinn og gera því auknar kröfur til hinnar sameiginlegu þjónustu, jafnframt því er aukinn vilji til að svara þessum kröfum fólks með markvissum og skjótum hætti. Hjá Reykjavíkurborg hafa skipulags- og bygginga,- framkvæmda- og umhverfissvið unnið að því að greina verkferla og skrá, til að bæta þjónustuna og til þess hafa þau m.a. nýtt sér gæðahugtakið og gæðahringinn.
11:00 Svifryk orsakir og lausnirÞorsteinn Jóhannsson Bc. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun Auknar rannsóknir á svifryki síðustu ár hafa sýnt fram á mikla skaðsemi þess. Yfirvöld í Evrópulöndum hafa því verið að herða kröfur varðandi svifryk. Árið 2010 ganga í gildi mun strangari kröfur um svifryk og miðað við ástandið í dag þá er mengun á höfuðborgarsvæðinu vel yfir þeim mörkum. Hvað er hægt að gera til að til að uppfylla strangari kröfur?
11:20 Aðalfundur Félags byggingarfulltrúa Dagskrá skv. lögum félgsins
12:30 HádegismaturHádegismatur verður á fundarstað
13:30 Starfsáætlun Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar Fyrirlesari NNStefna, markmið, mælingar og samræða við stjórnmálamenn. Hjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar hefur undanfarin ár verið unnið með starfsáætlanir og til þess verið notuð aðferðarfræði sem kallast Balanced Scorcard. Þróaðir hafa verið mælikvarðar í samræmi við starfsemina og með þeim gefst tækifæri til að fylgjast með og skoða starfsemina í heild, hvernig og hvert hún gengur og þróast. Allt þetta miðar að því að hafa heildarsýn yfir reksturinn og gefur stjórnmálamönnum svo og embættismönum tækifæri til að ræða heildrænt um starfsemina.
13:50 Langtíma sýn á niðurröðun framkvæmda og greiðsluflæðiFyrirlesari NNHjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar hefur verið unnið að gerð langtíma áætlana um uppbyggingu hverfa, götur, holræsi, skóla, félagsþjónustu og o.s.frv. með það að markmiði að ná jafnvægi milli tekna og gjalda þegar til lengri tíma er litið. Með þessu vinnst tvennt, annars vegar aukin yfirsýn yfir greiðsluflæði borgarsjóðs og hins vegar breytist orðræða milli stjórnmálamanna og embættismanna og fer að snúast um aðalatriðin.
14:10 Umræður og fyrirspurnir í tengslum við fyrirlestra
14:30 Fyrirtækjakynning Kynning þeirra fyrirtækja sem verða með kynningarstanda á fundinum.
15:00 Kaffi
15:15 Skoðunarferð og heimsóknirUndir stjórn heimamanna
18.15 Komið heim úr skoðunarferð Frjáls tími
19:30 Fordrykkur
20:00 Kvöldverður að hætti SATS og FB í HöllinniSkemmtiatriði undir stjórn Smára Björnssonar. Fjöldasöngur undir stjórn og undirspili þeirra Þorvaldar Vestmanns og Guðfinnar þórðarsonar.
Föstudagur 27 apríl
08:00 Morgunverður Morgunverður er framreiddur á hverju hóteli fyrir sig. 09:00 Frumvarp að mannvirkjalögum Nýmæli í nýrri byggingarreglugerð og Magnús Sædal Svavarsson byggingarfulltrúi í Reykjavík
09:30 Google Earth og VestmannaeyjarFrosti Gíslason forstöðumaður tæknideildar Vestmannaeyja Kynntar verða nýjar leiðir í að veita almennum upplýsingum til almennings um sögu og menningu í gegnum nýjan upplýsingavef sem tengdur hefur verið við Google Earth vefinn.
10.00 Umræður um fyrirlestra
10:15 Kaffi
10:30 Ný vatnsveituæð til VestmannaeyjaFyrirlesari NN Kynnt verður lagning nýrrar vatnsveituæðar frá Landeyjasandi til Vestmannaeyja, tæknilegar lausnir, framkvæmdir og arðsemi.
11:00 Atvinnumál í Vestmannaeyjum Fulltrúi atvinnuþróunarfélags suðurlands Kynnt verður hvað verið er að skoða varðandi atvinnumál í Vestmannaeyjum og hjá Sunnlendingum.
11:20 Hitastig á heitu neysluvatni og vatni til upphitunar Jakob Friðriksson sviðsstjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Mörg alvarleg slys hafa orðið vegna of mikils hita á framrásarvatni frá hitaveitu. OR hefur verið að vinna að verkefnum þessu tengdu með það að markmiði að draga úr tíðni slysa sem verða af þessum sökum bæði í híbýlum fólks og eins í sundlaugum og íþróttahúsum.
11:40 Bættar samgöngur til VestmannaeyjaFyrirlesari NN Kynntar hugmyndir sem eru uppi um bættar samgöngur við Vestmannaeyjar og gerð grein fyrir þýðingu þeirra fyrir íbúa í Eyjum og þjóðarbúið í heild.
12:00 Umræður um fyrirlestra
12:15 Hádegisverður
13:40 Aðalfundur SATS Dagskrá aðalfundar í samræmi við lög félagsins.
14:40 Kaffi
15:00 Skoðunarferð og heimsóknir í fyrirtæki
18.30 Komið heim úr skoðunarferð Frjáls tími
20:00 Hátíðarkvöldverður í boði bæjarstjórnar Vestmannaeyjar Ræðumaður kvöldsins Elliði Vignisson bæjarstjóri Dagskrá að öðru leyti skipulögð af heimamönnum.
Laugardagur 28. apríl
07:00 Morgunverður
07:30 Brottför frá hótelum
08:15 Ferja
10:15 Flug frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur
16:00 Ferja
