Byggingarfulltrúar
 

Tilkynningar

Málþing um byggingarmál

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Til  eftirfarandi fagfélaga:
Félag byggingarfultrúa, Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta. Félaga húsgagna- og innanhússarkitekta, Byggingafræðingafélag Íslands, Verkfræðingafélag Íslands, Tæknifræðingafélag Íslands, Iðnfræðingafélag Íslands/rafiðnfræðingar, Samtök iðnaðarins/Mannvirki-Félag verktaka.   

Hjálagt er málþingsboð   vegna málþings um byggingarmál sem Skipulagsstofnun efnir til  fimmtudag 4. desember næstkomandi á Hótel Loftleiðum, Reykjavík.   

Þess er vinsamlegast óskað að hvert  félag  framsendi boðið til sinna félagsmanna.

Virðingarfyllst
Sigurður Thoroddsen.


Málþing um byggingarmál 4. desember 2008.

Á árinu 2008 voru  tímamót í sögu Skipulagsstofnunar,  en þá  voru  70 ár liðin  frá því að  skipulagsnefnd ríkisins réð starfsmann til að annast skipulagsmál fyrir hönd nefndarinnar.  Fyrsti starfsmaður hennar  frá og með  1938, var Hörður Bjarnson arkitekt  og  varð hann síðar fyrsti skipulagsstjóri ríkisins. Ráðning hans telst því vera  upphaf að   starfsemi Skipulagstofnunar.  Á þessu ári eru einnig 10 ár liðin frá gildistöku núgildandi skipulags- og byggingarlaga og 15 ár frá því fyrstu lög um mat á umhverfisáhrifum voru sett.

Í tilefni  tímamótanna  hefur Skipulagsstofnun á þessu ári efnt til  námskeiða, málþinga og samráðsfunda  um skipulags- og umhverfismál og hafa atburðir verið í hverjum mánuði að undanskildum júní- og júlí mánuði.   Dagskrá afmælisársins  mun ljúka með málþingi fimmtudag 4. desember  nk. um byggingarmál, þ.e.a.s. starfsemi byggingareftirlits.

Á málþinginu, sem haldið verður í þingsal 5 á Hótel Loftleiðum í Reykjavík,  verður kynnt niðurstaða könnunar Skipulagsstofnunar á  framkvæmd byggingareftirlits sveitarfélaga,  auk þess sem að sjónarmið byggingarfulltrúa,  aðalhönnuða og verktaka verða kynnt.

Hjálögð er í PDF-formi dagskrá málþingsins.