Byggingarfulltrúar
 

Tilkynningar

Dagskrá Haustfundar SATS, FB og SAMGUS 2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Dagskrá Haustfundar SATS, FB og SAMGUS 2009

Haldinn á Hótel Sögu, Harvard salur 2. 

 

Föstudagur 30. október 2009 08.45-09.00 Skráning

09.00-09.10 Fundarsetning.

Fundarstjórar:

Kosning fundarritara:

09.10-10.00 Fjármálakreppan og hverning hafa sveitarfélaög og íbúar upplifað hana.

Fjallað verður um hverning sveitarfélög og íbúar hafa upplifað fjármálakreppuna ásamt því að greint verður frá ýmsum tölulegum staðreyndum um fjármál sveitarfélaga.

Fyrirlesari: Gunnlaugur Júlíusson Samabandi íslenskra sveitarfélaga

10.00–10.20 Kaffihlé

10.20-10.50 Breytt umhverfi tæknideilda sveitarfélaga.

Fjallað verður um þá breytingu sem orðin er og framundan á sviði framkvæmda og tæknideilda hjá sveitarfélögum í kjölfar breyttra aðstæðna í samfélaginu. Breyttar áherslur, forgangsröðun, hagræðing og fl.

Fyrirlesari: Guðlaugur H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar.

10.50-11.20 Breytt umhverfi skipulags- og byggingarmála sveitarfélaga.

Fjallað verður um þá breytingu sem orðin er og framundan á sviði skipulags - byggingarmála hjá sveitarfélögum í kjölfar breyttra aðstæðna í samfélaginu. Breyttar áherslur, forgangsröðun, hagræðing og fl.

Fyrilesari: Dr. Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðar.

11.20- 11.50 Hljóðvist í vistvænum byggingum

Síðustu ár hafa vistvæn vottunarkerfi rutt sér til rúms bæði í Evrópu og Ameríku. Einn þáttur í vistvottuninni er að taka tillit til hljóðvistar.

Kynnt verður rannsóknarverkefni varðandi hljóðvist sem Efla verkfræðistofa er að vinna að í samstarfi og styrkt af Reykjavíkurborg, framkvæmdarsýslunni og Íbúðarlánasjóði.

Fyrirlesari: Guðrún Jónsdóttir hljóðverkfræðingu Eflu verkfræðistofu

11.50-12.00 Umræður.

12.00-13.00 Hádegisverður í Skrúð.

13.00- 13.30 Meðhöndlun úrgangs á Íslandi í framtíðinni frá sjónarhóli sveitarfélaga.

Hvaða áhrif ný rammalöggjöf um úrgang hjá ESB á meðhöndlun úrgangs hefur hjá sveitarfélögum í framtíðinni og hver viðbrögð okkar hér á landi geta orðið.

Fyrirlesari: Lúðvik Gústafsson hjá sambandi íslenskra sveitarfélaga

13.30-14.00 Tilraunaverkefni um hreinsun frárennslis Selfossbæjar með skilju- og sandsíubúnaði.

Seinni hluta árs 2008 fór fram tilraun á hreinsun á skólpi frá Selfossbæ með aflfræðilegri aðferð þar sem notaður var skilju- og sandsíubúnaður. Slík hreinsun á skólpi er tiltölulega ný af nálinni erlendis og hér á landi hefur henni ekki verið beitt að neinu leyti. Markmið verkefnisins var að meta heildar hreinsivirkni búnaðarins fyrir mismunandi efnisþætti skólps og undir mismunandi álagi. Tilraunakerfið var keyrt bæði með og án kekkjunarefna og mat lagt á mun á hreinsivirkni. Einnig var grugginnihald skólpsins mælt fyrir og eftir hreinsun með það að markmiði að kanna hvort hægt væri að draga úr magni gerla í frárennslinu með útfjólublárri geislun. Að verkefninu komu sveitarfélagið Árborg, Efla verkfræðistofa, Nordic Water frá Svíþjóð og Varmaverk. Helstu þættir tilraunaverkefnisins verða kynntir ásamt helstu niðurstöðum þess.

Fyrirlesari: Þröstur Grétarsson Eflu verkfræðistofu

14.00-14.30 Göngu-hjóla- og reiðstígar í náttúrunni.

Lega og merkingar göngu-hjóla- og reiðstíga í náttúrunni. Aðlögun þeirra að landi og verndun óspiltrar náttúru í því samhengi.

Fyrilesari: Þráinn Hauksson landslagsarkitekt, Landslagi.

14.30-14.45 Fyrirtækjakynning

Íslenska Gámafélagið kynnir starfsemi sína.

14.45 – 1500 Kaffi

1500 – 1730 Skoðunarferð:

Farið verður í skoðunarferð í Íslenska Gámafélagið í Gufunesi.

1930-2000 Fordrykkur í Sunnusal Hótel Sögu, í boði Íslenska Gámafélagsins.

20:00 - Sameiginlegur hátíðarkvöldverður að hætti SATS og FB í Sunnusal Hótel Sögu Ræðumaður kvöldsins verður tilkynntur síðar

Boðið verður upp á skemmtidagskrá undir borðum að hætti SATS Dagskráin verður í höndum Spaugstofumanna SATS.

Skráningarfrestur er til 19. október 2009

Þátttaka tilkynnist á meðfylgjandi skráningarblaði til

Bjarka Jóhannessonar
, ritara SATS

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. sími 6645611,

Það er von stjórnar SATS og FB að allir finni eitthvað við sitt hæfi á fundinum og skrái sig.

Þátttökugjald: fundur, kaffi hádegismatur, ferðir kr. 8.000,-

Þátttökugjald: fundur, kaffi hádegismatur, kvöldverður, ferðir,

án maka kr. 18.000.-

Þátttökugjald: fundur, kaffi hádegismatur, kvöldverður ferðir,

með maka kr. 28.000.-