Byggingarfulltrúar
 

Tilkynningar

Lög félagsins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Lög Félags byggingarfulltrúa.

1. gr.
Nafn og heimili.

Félagið heitir Félag byggingarfulltrúa. Heimili þess og varnarþing er heimili formanns.

2. gr.
Tilgangur og markmið.

Stuðla að faglegum undirbúningi mannvirkjagerðar og virku eftirliti með
að kröfum um öryggi, endingu, hagkvæmni bygginga og annarra mannvirkja sé fullnægt.
Koma á samskiptum við hliðstæð fagfélög nágrannaþjóða með gagnkvæman þekkingarauka að leiðarljósi.
Efla tjáskipti um fagleg málefni og samræmingu á embættisfærslum s.s. með útgáfu sérrita og eyðublaða.
Félagið tekur ekki afstöðu til launa né starfskjara félagsmanna.

3. gr.
Félagsmenn.

Félagar geta þeir orðið sem eru starfandi byggingarfulltrúar á landinu.
Inntöku félaga skal samþykkja á aðalfundi.
Stjórn félagsins getur ákveðið að heimila þátttöku annarra aðila með málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins s.s. kjörnir fulltrúar sveitarfélaga í nefndum, starfsmenn embætta byggingarfulltrúa eða stofnana ríkisins eða sveitarfélaga sem tengjast byggingareftirliti að mati stjórnar og eiga erindi til fundarins hverju sinni.
Stjórn félagsins er heimilt að tilnefna heiðursfélaga. Hafa þeir seturétt á fundum félagsins með málfrelsi, tillögu- og atkvæðarétt. Þeir greiða ekki félagsgjald.
Semja skal nánari reglur um heiðursfélaga.

4. gr.
Réttindi og skyldur félagsmanna.

Félagsmönnum ber að leggja fram sérþekkingu sína í þágu félagsins þegar stjórn þess óskar, t.d. með þátttöku í nefndarstörfum og erindaflutningi á fundum og/eða námsskeiðum. Félögum er skylt að taka kjöri til trúnaðarstarfa, en geta beðist undan endurkosningu. Félagar skulu greiða árgjöld samkvæmt ákvörðun aðalfundar.

5. gr.
(breytt á aðalfundi 6. maí 2004)
Stjórn.

Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi og skal hún skipuð 5 mönnum, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Kjörtímabil þeirra eru þrjú ár.
Formaður skal kosin sérstaklega og síðan 4 í stjórn. Stjórnarmenn skipta með sér störfum varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjóranda.
Stjórn félagsins kemur fram fyrir hönd félagsins og getur tekið til afgreiðslu mál og erindi sem berast félaginu. Stjórn félagsins skal gera grein fyrir afgreiðslu mála sem henni berast á aðalfundi.
Stjórn félagsins getur skipað nefndir til að sinna ákveðnum verkefnum fyrir félagið.
Stjórnin undirbýr alla fundi félagsins og sér um boðun þeirra.

6. gr.
Aðalfundur.

Aðalfundur er æðsta stjórn félagsins, hann skal halda fyrir fyrsta júní ár hvert.
Á aðalfundi skal stjórnin flytja starfsskýrslu og leggja fram endurskoðaða reikninga.
Aðalfund skal boða bréflega með minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.
Aðalfundi skal stjórnað skv. hefðbundnum fundarsköpum.

Dagsskrá aðalfundar skal vera meðal annars:
1. Setning.
2. Kosning fundarstjóra.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Lagabreyting, ef við á.
5. Skýrsla stjórnar.
6. Skýrsla starfandi nefnda.
7. Reikningar félagsins lagðir fyrir fundinn.
8. Ákvörðun félagsgjalda.
9. Kosning formanns.
10. Kosning stjórnarmanna.
11. Kosning tveggja endurskoðenda.
12. Önnur mál.

7. gr.
Fundir.

Almenna fundi skal halda svo oft sem stjórn telur ástæðu til. Einnig getur helmingur félagsmanna krafist aukafundar.

8. gr.
Lagabreytingar.

Lögum þessum er aðeins hægt að breyta á aðalfundi með 2/3 greiddra atkvæða. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins mánuði fyrir aðalfund. Tillögur um lagabreytingar skulu kynntar í aðalfundarboði.

9. gr.
Félagsslit.

Verði félaginu slitið renna eignir þess til Sambands íslenskra sveitarfélaga til varðveislu. Ef ekki er boðað til aðalfundar tvö ár í röð telst félaginu slitið.